Ég get allt !

Það er ótúlegt til þess að hugsa að nú séu liðin 20 ár frá því að  litli Kristófer Atli kom í heiminn svo fullkominn og fallegur. Frískur og kraftmikill. Ég 18 ára gömul og þóttist alveg klár í slaginn. Það væri fátt sem ég treysti mér ekki til að takast á við í hinu nýja hlutverki, að vera móðir. Ég væri nú ekki sú eina og alls ekki sú yngsta. Allstaðar í kring um mig voru ungar mæður. Og eldri mæður, með reynslu, svo engu var að kvíða.

 

  Þegar maður er 18 ára heldur maður að maður geti allt. 38 ára gömul sé ég að ég hafði svo sem ekki á svo röngu að standa.

 

 

Að ganga með barnið og koma því í heiminn fannst mér ekkert svo erfitt, reyndar auðveldara en ég hafði ímyndað mér. Að fá loksins að halda á litla krílinu, sem hafði spriklað svo kröftuglega í bumbunni minni, var dásamlegt. Að gefa brjóst,  „pís of keik“  bleyjuskipti, næturbrölt og þvottastúss, óþarfi að tala um það. Fyrsta vikan gekk stórkostlega og átalaust fyrir sig. Við komum heim af sjúkrahúsinu og allt í lukkunnar velstandi.  En þá fór að halla aðeins undan fæti. Litli kúturinn kominn með hita og ég, unga móðirin, sem gat allt, hringdi á hjúkkuna sem sagði mér að hafa ekki áhyggjur, þetta væri allt eðlilegt. Ég hugsaði að auðvitað hefði hún á réttu að standa. Konan með reynsluna hlyti að hafa á  réttu að standa.  Ég bara 18, þó ég gæti allt, vissi ég kannski ekki allt. Ég fór eftir ráðleggingum hjúkkunnar og ýtti áhyggjunum burt. Hitinn fór hækkandi og áhyggjurnar með og alltaf var sama svarið frá hjúkkunni; allt eðlilegt, hafðu ekki áhyggjur , gefðu honum stíl. Svona gekk þetta þangað til mér var nóg boðið og fór með drenginn til læknis, sem gaf honum lyf við útbrotum  sem voru byrjuð að myndast og hita. Pensillín. Heim fór ég, með aðeins minni áhyggjur en áhyggjur samt.  Ég náttúrulega bara 18 og kunni ekkert á svona lagað. Ástandið lagaðist ekkert og drengurinn var orðinn mjög veikur og heil vika liðin. Og þó ég væri bara 18 vissi ég að þetta gat ekki verið eðlilegt svo ég arka með drenginn upp á sjúkrahús og segi farir mínar ekki sléttar. Aðkomulæknir að sunnan tekur á móti okkur, ungu móðurinni og litla lasna drengnum. Við vorum send með næstu vél suður til Reykjavíkur og beint inn á Landsspítala. Þar sem syninum var kippt úr höndunum á mér og farið með eitthvert á bakvið og þar sem hann var skoðaður í bak og fyrir. Það sem óttast var mest, var að hann væri kominn með heilahimnubólgu. Næstum klukkustund síðar kom læknirinn fram og tilkynnti okkur að svo væri ekki en enga skyringu væri að finna á þessum veikindum svo nú væri ráð að leggja drenginn inn til rannsóknar.  Mér var létt yfir heilahimnubólgufréttunum en var hrædd um að eitthvað annað kæmi upp, ekki síður ógnvænlegt.  Eftir miklar rannsóknir næstu daga kom í ljós að drengurinn var blæðari. Það vantaði allt storknunarefni í blóðið. Einhver vírus eða veira hafði hreiðrað um sig en ekki væri hægt að komast að því hvort eða hvað væri vegna þess að hann hafði áður verið settur á pensillín sem kæmi í veg fyrir að hægt væri að rækta blóðsýnin. Þar sem ekki var vitað hvað væri var hann settur í einangrun á barna gjörgæsludeild. Þarna stóðum við, með fullt af svörum og enn fleiri spurningar. Ég var náttúrulega bara 18 ára og vissi akkúrat ekkert um þessi mál. En áfram stóð ég á mínum sterku beinum og baráttunni skyldi áfram haldið.

 

 

  Mikill blóðvökvi hafði safnast inn á kviðarhol litla drengsins og þurfti því að setja brunn svo hægt væri að tappa af kviðarholinu reglulega. Ýmsum efnum var bætt í blóðið til að auka storknun, gerð voru blóðskipti þrisvar, ef ég man rétt og allt reynt til að bæta ástandið. Kviðurinn þandist út milli þess sem tappað var af. Útlitið var ekki gott. Fjölskyldur okkar voru nú komnar okkur foreldrunum til stuðnings. Sem betur fer, því ég var bara 18 og gat ekki allt, alveg ein.  Nú gat brugðið til beggja vona svo drengurinn var skírður skemmri skírn. Og fékk nafnið Kristófer Atli. Svo fór, að allt fór á versta veg. Lungun gáfu undan blóðvökvanum í kviðarholinu. Hjartað hætti að ská.

 

 

   Eitthvað sem 18 ára gamalli móður datt ekki til hugar að gæti gerst, gerðist.  Á tuttugu og tveimur sólarhringum upplifði ég mestu gleði, mestu erfiðleika og mestu sorg sem nokkur móðir getur upplifað. Sama hve gömul eða ung hún er.

 

 

  Framundan var erfiður tími með jarðarför,í fyrsta skipti á ævinni, spurningum og bið eftir svörum. Kaldur og dimmur vetur. Þökk sé móður minni gekk allt sem þurfti að ganga, eins og berserkur planaði hún og framkvæmdi og undirbjó jarðarför. Og stóð við hliðina á mér, sterk eins og klettur. Ég veit ekki hvað gerðist, en einhvern veginn stóð ég þetta af mér. Mannsheilinn er furðulegt fyrirbæri, hann deyfir mann og lætur mann gleyma. Enn þann dag í dag, man ég varla eftir jarðarförinni eða dögunum fyrir, eða dögunum og vikum eftir. Ég þurfti fylgd í kirkjugarðinn daginn eftir, því ég rataði ekki. Og mundi ekki hvar drengurinn minn var grafinn. Þarna var ég 18 ára og buguð af sorg. Og  fannst ég ekki geta þetta.

 

 

  En sagt er að tíminn lækni öll sár. Það er nokkuð til í því. Þó eftir sitji stórt ör, sem ég alltaf mun finna fyrir, þá stend ég enn. Og ég gat þetta. 18 ára gömul.

 

 

  Þegar ég lít til baka, þá sé ég og ég held, að ég geti allt. Fyrst ég stóð þennan byl af mér og marga aðra sem á eftir komu. Svartnætti og þunglyndi. Þá þraukaði ég.  Ég er sú menneskja sem ég er í dag vegna þessa. Sterkari og reynslunni ríkari.

 

                     Hönd þín snerti  sálu okkar

                 Fótspor þín liggja um líf okkar allt.

     

                 Kristófer Atli Árnason

                 F. 3. Október 1990

                 D. 25. Október 1990

 

   Tileinkað Írisi minni sem er að verða 18 ára og getur allt!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóley Eiríksdóttir

Takk fyrir að deila þessu Heiða mín. Það hjálpar ótrúlega að skrifa svona lífsreynslu niður og koma frá sér. Knús :*

Sóley Eiríksdóttir, 4.10.2010 kl. 17:28

2 identicon

Elsku Heiða

Ég sit með tárin í augunum eftir þessa lesningu. Það sem þú varst - og ert - sterk! Takk fyrir að leyfa okkur að lesa þessa endurminningu - ég dáist að þér. Knús yfir hafið :*

Gréta Björg Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 20:19

3 Smámynd: Ísbjörn

Elsku Heiða!

Þú ert alltaf efst í huga mínum um þetta leyti árs. Þetta er ótrúleg lýsing og svona nokkuð á enginn að þurfa að upplifa, hvað þá 18 ára gömul. En það sem þú ert nú sterk og hefur þessi lífsreynsla svo sannarlega haft sín áhrif þar! Sendi þér risaknús!

Kv Sóley Vet

Ísbjörn, 4.10.2010 kl. 22:46

4 identicon

Blessuð Heiða!

Takk fyrir að deila þessu.  Þið mamma þin eruð báðar eins og klettar, flottar konur.

Guðrún Anna Finnbogadóttir

Guðrún Anna Finnbogadóttir (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 07:06

5 identicon

Takk fyrir að deila þessu. Tíminn fljótur að líða...komin 18 ár....þetta var erfiður tími fyrir litla fjölskyldu.

Kveðja

Guðmundur og Kristín

Sandgerði

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 16:33

6 identicon

Átti að sjálfsögðu við 20 ár.

Kveðja frá

Sandgerði.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 6.10.2010 kl. 15:35

7 Smámynd: Heiðrún Björk Jóhannsdóttir

Takk fyrir hlýjar kveðjur öll sömul :)

Heiðrún Björk Jóhannsdóttir, 12.10.2010 kl. 02:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband