Mjólkurþoka

Yndislegur einkasonurinn fékk í fyrsta skipti að borða í dag, Þó enn vanti 2 vikur í að hann verði 6 mánaða. Eins og sönnum karlmanni sæmir, er hann mjög áhugasamur um brjóst og dafnar vel eftir því. Annars hefur borið á því undanfarna daga að áhuginn hefur aukist svo til muna að hann helst vill liggja á, á 1 1/2 tíma fresti sem er alls ekki að gera sig og langt frá hans daglegu hegðun og rútínu.Var þetta farið að setja hressilega mark sitt á konuna með brjóstin sem hefur alvarlega þjáðst af hinni svokölluðu mjólkurþoku. Svo gleymin var hún að hún mátti þakka fyrir að rata heim til sín ef hún fór of lagt að heiman, átti í erfiðleikum að muna hvaða dagur var og hvar hún lagði frá sér hlutina. Bókstaflega stúpit!! Svo langt gekk það að einn daginn, þegar hún var að labba heim úr stuttri vinnuferð, og gekk framhjá svona hraðamæli sem segir ökumönnum hve hratt hann ekur og blikkar ljósi ef ekið er of hratt, og sýndi þessi hraðamælir 35km , flaug þá í gegnum kollinn, á ljóshraða, “vá hvað ég labba hratt!!”.   Hingað og ekki lengra! Nú þarf að gera eitthvað í málunum!. Med det samma arkaði hún út í búð og keypti graut handa drengnum því hann hlyti bara að vera svangur. Eftir kvöldbaðið og sopa úr báðum brjóstum fékk hann loksins eitthvað almennilegt að borða. Maís graut með dass að stoðmjólk og honum skolað niður með vatni úr stútkönnu. Þetta þótti honum ansi gott og borðaði með bestu lyst. Eftir þessa dýrindis máltíð þótti tilvalið að leggjast á meltuna í sófanum eða öllu heldur setjast og horfa á bandið hans Bubba míns, innpakkaður í sæng og huggulegheit. Ekki hafði hann setið lengi þegar augnlokin voru farin að síga og fyrr en varði sat hann saman brotinn með andlitið ofan á hnén á bólakaf í sænginni. Þreyttur, saddur og sæll var hann svo lagður í rúmið sitt, og ekki rumskað síðan. Þegar öllu er á botninn hvolft er það bara mamman sem er með brjóstin á heilanum. Sonurinn vill bara fá að borða!! Góða nótt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með litla krúttið  Ef ég má ráðleggja e-ð, þá er það, haltu þig við þessa einu auka máltíð næstu 4 - 6 mánuði.  Þá ferðu að gefa tvisvar "alvöru máltíðir" og síðan auka það og jafnframt minnka brjóstagöf.  Þetta reyndist mér vel, og ég svaf allar nætur frá síðla kvölds til morguns    Kær kv. E.

Edda (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 03:32

2 Smámynd: Arndís Baldursdóttir

Ja hérna, ég vona að þú sért alveg splunkunýr bloggari, ég meina að ég hafi ekki verið að missa af neinu, þetta lofar allavega góðu, frábært að lesa skrifin þín. Heyrumst fljótlega

Arndís Baldursdóttir, 24.2.2008 kl. 00:36

3 Smámynd: Arndís Baldursdóttir

Hæ hó, Holtakex, á ekki að koma með nýja færslu álfurinn minn?  Á ég að klappa þig upp ?

Arndís Baldursdóttir, 1.3.2008 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband