Ég mótmæli

ÉG mótmæli:

háu bíóverði

háu bensínverði

kulda

plássleysi

flugum og köngulóm

verðbólgu

hálsbólgu

hraðakstri

regnhlífum

löngum vetri

tímaleysi

háu verði á hvítvíni

staðsetningu Hlemms

spónaplötum í miðbænum

dýru flugfargjaldi

eiturlyfjum

gasi.

ÉG mótmæli mótmælum

ÉG mótmæli tískunni.

En mótmæli eru í tísku

og ég fylgi tískunni.


mbl.is Unglingar stöðvuðu umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Heyr! Heyr! staðsetning Hlemms er til háborinnar skammar!

Svo er ekkert hægt að nota þessar regnhlífar hérna á Íslandi!! Þær fjúka bara!! Það er eins og það sé ekkert gert ráð fyrir öllu þessu roki hérna!! 

Viðar Freyr Guðmundsson, 30.4.2008 kl. 18:49

2 Smámynd: The suburbian

Sammála þessu! Hæ Heiða. Gaman að sjá þig hér í bloggheimum og væri gjarnan til í að gerast bloggvinur. Kveðja frá bekkjarsystur frá í gamla daga, Berglind Þ.

The suburbian, 1.5.2008 kl. 19:14

3 Smámynd: Heiðrún Björk Jóhannsdóttir

Já sömuleiðis. Verum vinkonur

Heiðrún Björk Jóhannsdóttir, 2.5.2008 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband