Ég hef það á bak við eyrað..

Litlir fingur seilast eftir borðbrúninni og teygja sig eftir sheriosinu. Hann læsir vísifingri og þumalfingri utan um “stóran” hringinn, leggur hann að vörunum og fær sér bita, krriss.Með bros á vör smjattar hann á góðgætinu. Og stingur svo restinni af hringnum upp í sig. Svona hvarf þetta eitt af öðru af borðplötunni ofann í litla mallann..

Eitthvað annað en þetta barnamauk og lífrænar kartöflur sem endalaust er verið að næra mann á!!

Namm namm! 

 

 

Þetta þykir honum gott. Dauðfeginn að fá að smakka eitthvað nýtt, nú fær hann sér brauð með kæfu, kjúkling og ýmislegt annað sem fullorðnir fá sér að borða. En best og mest spennandi þykir honum sheriosið.

  

Ég var síst að skilja af hverju það var sherios hér um öll gólf, hvar sem ég steig var sherios . Inní eldhúsi, stofu, herbergi og meira að segja inná baði. Og hann sem fær bara að borða það inn í eldhúsi við eldhúsborðið.

 En svo rann það upp fyrir mér. Þegar ég tók hann upp úr stólnum sínum sá ég að hann var með hring í sitt hvorum lófanum, inn í erminni, ofan í buxnastrengnum og uppábrotinu á buxunum. Vel falið til mögru áranna. Allir felustaðirnir og öll trikkin í bókinni notuð.

 Svo þegar hann var lagstur á brjóstið til að fá sér ljúffengan desert fann ég einn, vel falinn, blautann og klístraðan, á bak við eyrað............................

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dóra Maggý

Hahahaha..... ohhh... þetta er svooo dúllulegt,þau eru æði á þessum tímapúnkti og svo koma aðrir tímapúnktar sem eru auðvitað líka skemmtilegir,þess vegna á ég fjögur börn..þetta er bæði mikil vinna og rosalega skemmtilegt   en ég vona að þú farir nú að skrá þig á mótið,langar að hitta þig líka....knússs...   Dóra M.

Dóra Maggý, 2.5.2008 kl. 23:43

2 Smámynd: Arndís Baldursdóttir

Dásamleg skrif hjá þér Heiða mín, þú ert snillingur. Með kveðju frá Skagaliðinu

Arndís Baldursdóttir, 3.5.2008 kl. 23:42

3 Smámynd: Heiðrún Björk Jóhannsdóttir

Takk fyrir það Addy mín, gott að heyra og hvetjandi   vonandi færðu einhverntíma að lesa bókina...

Heiðrún Björk Jóhannsdóttir, 4.5.2008 kl. 09:56

4 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Þau eru svo sæt með hringina út um allt andlit og finna ekki neitt.

ÞE 

Þórdís Einarsdóttir, 5.5.2008 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband